KFG hefur fengið öflugan liðstyrk, en framherjinn Ken Essien hefur fengið leikheimild með KFG.
Essien er 21 árs Spánverji fæddur í Barcelona en foreldrar hans frá Ghana. Essien hefur undanfarna tvo mánuði æft með KFG. KFG býst við miklu af Essien á komandi leiktímabili í 3 deildinni.
Ljóst er að KFG eru að þétta raðirnar fyrir komandi átök í 3.deildinni en þeir sýndu góða takta í 4.deildinni í fyrra þar sem þeir fóru taplausir í gegnum riðilinn og töpuðu aðeins tveimur leikjum allt tímabilið báðir þeir leikir voru í úrslitakeppninni.
Athugasemdir