Sky Sports greinir frá því að Marseille hafi ákveðið að hætta við kaupin á Dimitri Payet frá West Ham.
Marseille seldi Payet til Hamranna fyrir tæpar 11 milljónir punda sumarið 2015 og núna vill Frakkinn knái snúa aftur á heimaslóðir vegna heimþrár.
Marseille seldi Payet til Hamranna fyrir tæpar 11 milljónir punda sumarið 2015 og núna vill Frakkinn knái snúa aftur á heimaslóðir vegna heimþrár.
Franska félagið hefur ekki trú á að því takist að fá Payet til sín á viðráðanlegu verði í janúar og ætlar því að einbeita sér að öðrum leikmannakaupum.
Payet óskaði eftir að vera seldur frá West Ham fyrr í janúar og fór í ólöglegt verkfall þegar félagið hafnaði tveimur tilboðum frá Marseille.
Athugasemdir