fös 20. janúar 2017 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: FE 
„Messi er eins og Leðurblökumaðurinn"
Messi er einn besti fótboltamaður sögunnar.
Messi er einn besti fótboltamaður sögunnar.
Mynd: Getty Images
Jorge Sampaoli, þjálfari Sevilla, segir að það að líkja öðrum leikmönnum við argentíska snillinginn, Lionel Messi, sé eins og að líkja frábærum lögreglumanni við Leðurblökumanninn (e. Batman).

Þessi 56 ára gamli þjálfari Sevilla á Spáni sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag og þar hrósaði hann landa sínum, Messi, gríðarlega mikið.

„Ég hef alltaf sagt að líkja Messi við einhvern fótboltamenn sé eins og að líkja frábærum lögreglumanni við Leðurblökumanninn," sagði Sampaoli.

Sevilla hefur verið að spila vel á þessu tímabili og þeir eru aðeins stigi á eftir toppliði Real Madrid, sem hafa spilað einum leik minna.

„Ég er ánægður með að stuðningsmenn Sevilla séu ánægðir. Það setur aðeins meiri ábyrgð á herðar okkar, þar sem við stefnum á ná meira en 85 stigum, en það verður mjög, mjög erfitt."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner