fös 20. janúar 2017 08:00
Stefnir Stefánsson
Stoke að ganga frá kaupum á Berahino
Berahino virðist loksins vera að fá sínu framgengt
Berahino virðist loksins vera að fá sínu framgengt
Mynd: Getty Images
Saido Berahino virðist loksins vera að losna frá West Bromwich Albion en framherjinn hefur lengi viljað komast frá félaginu.

Mark Huges staðfesti að viðræður milli Stoke og West Bromwich hefðu verið teknar upp aftur eftir að síðar nefnda liðið hafnaði boði Stoke í framherjann fyrr í vikunni.

Viðræðurnar eru sagðar ganga vel og allt lýtur út fyrir að Berahino muni ganga til liðs við Stoke á næstu dögum.

Tottenham reyndi að klófesta Berahino í sumar og var framherjinn allt annað en sáttur þegar West Brom neituðu að leyfa honum að fara. Eftir það hefur hann aldrei náð að vinna sig almennilega inn í liðið en nú virðist martröðin vera á enda fyrir Berahino. En leikmaðurinn hefur aðeins tekið þátt í 5 leikjum með West Brom á tímabilinu.


Athugasemdir
banner
banner