Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 20. janúar 2017 16:55
Ívan Guðjón Baldursson
West Brom samþykkti tilboð frá Stoke í Berahino
Mynd: Getty Images
Saido Berahino á aðeins eftir að skrifa undir samning og standast læknisskoðun áður en hann getur verið kynntur opinberlega sem leikmaður Stoke City.

Berahino þótti eitt mesta efni enska boltans áður en hann lenti í harkalegum deilum við yfirmenn sína hjá West Bromwich Albion sem neituðu að selja hann til Tottenham fyrir rúmlega 20 milljónir punda.

Eftir alla dramatíkina í sumarglugganum 2015 hefur Berahino ekki tekist að ná sér aftur á strik.

West Brom ætlar að krækja í Odion Ighalo frá Watford til að fylla í skarð Berahino, en ekki var greint frá kaupverðinu sem er talið nema rúmum 10 milljónum punda.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner