lau 20. janúar 2018 19:22
Gunnar Logi Gylfason
England: Man City aftur á sigurbraut
Aguero skoraði þrennu í dag
Aguero skoraði þrennu í dag
Mynd: Getty Images
Man City 2-1 Newcastle
1-0 Sergio Aguero ('34)
2-0 Sergio Aguero (víti) ('63)
2-1 Jacob Murphy ('67)
3-1 Sergio Aguero ('83)

Manchester City tapaði sínum fyrsta leik í deildinni gegn Liverpool síðustu helgi.

Í kvöld komust þeir aftur á sigurbraut með sigri á Newcastle á heimavelli í dag.

Heimamenn voru 1-0 yfir þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Þegar tæpar 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik fengu heimamenn vítaspyrnu sem Sergio Aguero, markahæsti leikmaður Man City frá upphafi, skoraði úr.

Newcastle minnkaði muninn fjórum mínútum seinna þegar Jacob Murphy skoraði.

Sergio Aguero skoraði aftur á 83.mínútu eftir að Leroy Sane hafði farið illa með vörn Newcastle.

Þetta var hans 14. mark í 10 leikjum fyrir City gegn Newcastle.

Manchester City eru nú með 12 stiga forskot á nágranna sína í Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner