Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. febrúar 2017 21:34
Elvar Geir Magnússon
Albert Guðmunds með bæði í sigurleik
Albert í leiknum í kvöld.
Albert í leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
Sóknarleikmaðurinn efnilegi Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk varaliðs PSV Eindhoven þegar liðið vann 2-0 sigur gegn NAC Breda í hollensku B-deildinni í kvöld.

Albert lék allan leikinn en PSV er í fimmta sæti deildarinnar.

Þessi 19 ára leikmaður lék sinn fyrsta A-landsleik í janúar þegar Ísland mætti Kína í vináttulandsleik. Hann hefur skorað sex deildarmörk fyrir varalið PSV á tímabilinu.

Í Hollandi er varaliðum frjálst að taka þátt í deildakeppni en geta þó ekki leikið í sömu deild og aðalliðið. Varaliðið getur því ekki komist upp í efstu deild.


Athugasemdir
banner
banner
banner