banner
   mán 20. febrúar 2017 19:23
Stefnir Stefánsson
Arsene Wenger: Erum klárir í hörku leik
Arsene Wenger
Arsene Wenger
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger gaf sig á spjall við blaðamenn þegar hann mætti á heimavöll Sutton United fyrir leik Arsenal gegn utandeildarliðinu í enska bikarnum sem hefst innan skamms.

„Við getum bara bætt fyrir það sem gerðist gegn Bayern þegar við spilum við Bayern aftur í seinni leiknum. Við ætlum að einbeita okkur bikarnum núna og við ætlum að byrja af krafti í dag. Við þurfum að vera vel einbeittir því þetta verður hörku leikur." sagði Wenger.

„Ég hef verið hér á Englandi í langan tíma núna, nógu langan til að vita það að hver einasti leikur í bikarnum er erfiður, við erum tilbúnir í erfiðan leik." sagði Wenger sem ber greinilega mikla virðingu fyrir andstæðingi sínum í dag.

Við erum atvinnumenn og við eigum að getað mætt þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir. Við erum ekki vanir svona velli en ég tel að við séum með nógu mikil gæði til að aðlagast honum snemma. Hann er að minnsta kosti flatur"

Ég hef spilað við lið sem eru jafnvel minni félög en Sutton. Yfirleitt treysta svona minni lið á tvo eða þrjá einstaklinga sem að gefa hjarta sitt og sál í félagið og þessvegna ber ég mikla virðingu fyrir svona liðum." sagði Wenger að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner