Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. febrúar 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Mynd: Kristinn Freyr með Dr. Phil greiðslu
Dr. Phil og Kristinn Freyr.
Dr. Phil og Kristinn Freyr.
Mynd: NordicPhotos/Samsett
Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður GIF Sundsvall, fékk sér mjög áhugaverða hárgreiðslu um helgina. Kristinn smellti þá í greiðslu eins og sjónvarpsmaðurinn og sálfræðingurinn Dr. Phil!

Um var að ræða nýliðavígslu hjá GIF Sundsvall en Kristinn fór aðra leið en leikmenn gera vanalega í vígslunni.

„Nýir leikmenn eiga að syngja og ég fékk ekki sönghæfileika í vöggugjöf," sagði Kristinn við Fótbolta.net í dag.

„Ég var búinn að ákveða að krúnuraka mig í æfingaferðinni og þar sá ég leik á borði og deal-aði við fyrirliðann um að ef ég myndi henda í Dr. Phil í einn dag þá fengi ég að sleppa því að syngja. Virkilega klókt hjá mér."

Kristinn fór á kostum með Val í Pepsi-deildinni í fyrra og hjálpaði liðinu einnig að verða bikarmeistari. Eftir tímabilið samdi hann síðan við GIF Sundsvall.

GIF Sundsvall er í æfingaferð á Spáni en liðið mætir Eskilstuna í fyrsta leik í sænsku úrvalsdeildinni þann 2. apríl.
Athugasemdir
banner
banner
banner