Óvíst er hvort Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, verði með liðinu gegn Southampton í úrslitum enska deildabikarsins á sunnudaginn.
Rooney hefur misst af síðustu tveimur deildarleikjum vegna meiðsla og hann var heldur ekki með gegn Blackburn í enska bikarnum í gær.
Rooney hefur misst af síðustu tveimur deildarleikjum vegna meiðsla og hann var heldur ekki með gegn Blackburn í enska bikarnum í gær.
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segir óljóst hvort að Rooney verði klár fyri rnæstu helgi.
„Ég veit það ekki," sagði Mourinho eftir leik í gær aðspurður út í það hvort Rooney verði klár gegn Southampton.
Rooney hefur ekki byrjað leik í ensku úrvalsdeildinni síðan 17. desember en hann hefur verið orðaður við félög í Kína að undanförnu.
Athugasemdir