Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. febrúar 2018 15:00
Elvar Geir Magnússon
Matic gaf syni sínum Old Trafford köku
Mynd: Instagram
Nemanja Matic, miðjumaður Manchester United, gaf sjö ára syni sínum ansi magnaða afmælisköku.

Kakan er skemmtilega nákvæm eftirlíking af heimavelli United, Old Trafford. Mynd af henni má sjá hér að neðan.

Matic hefur átt flott fyrsta tímabil hjá United eftir að hann kom frá Chelsea síðasta sumar og hefur byrjað alla leiki liðsins í ensku úrvalsdeildinni.

Þessi 29 ára Serbi verður mikilvægur fyrir Rauðu djöflana í Meistaradeildinni en liðið mætir Sevilla á útivelli á morgun í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar.
Athugasemdir
banner
banner