Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 20. febrúar 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu fögnuð Wigan eftir sigurinn
Mynd: Getty Images
Wigan sló nágranna sína í Manchester City úr enska bikarnum í gærkvöldi og fögnuðu heimamenn dátt að leikslokum.

Will Grigg skoraði eina mark leiksins á lokakaflanum og áttu gestirnir engin svör við varnarleik Wigan.

Það var nokkuð um dramatík í leiknum og þegar heyrðist í lokaflautinu brutust fagnaðarlætin út. Ekki leið á löngu þar til völlurinn var fullur af áhorfendum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá hvernig stemningin var, en á tímabili var völlurinn fullur af fólki að dansa við og syngja með Will Grigg's on fire laginu heimsfræga.







Athugasemdir
banner
banner