Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. febrúar 2018 14:00
Magnús Már Einarsson
Tennisboltum rigndi inn á völlinn í Þýskalandi
 Peter Gulacsi markvörður Leipzig umkringdur tennisboltum.
Peter Gulacsi markvörður Leipzig umkringdur tennisboltum.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Frankfurt hentu fullt af tennisboltum inn á völlinn fyrir leik liðsins gegn RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í gær.

Stuðningsmennirnir voru afar ósáttir við að leikurinn færi fram á mánudagskvöldi en ekki um síðustu helgi.

Til að mótmæla þá hentu stuðningsmennirnir hundruðum tennisboltum inn á völinn fyrir leik.

Fresta þurfti leiknum um nokkrar mínútur á meðan verið var að fjarlægja tennisboltana af vellinum.

Frankfurt vann leikinn 2-1 og stökk með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar en Leipzig er stigi á eftir í fimmta sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner