„Ég er ánægður með markið en er leiður vegna úrslitanna," sagði Brasilíumaðurinn Willian eftir 1-1 jafntefli gegn Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Willian kom Chelsea yfir en Lionel Messi jafnaði fyrir gestina frá Katalóníu nokkrum mínútum síðar.
Willian var óheppinn að skora ekki þrennu þar sem hann átti tvö stangarskot í fyrri hálfleiknum.
„Við áttum sigurinn skilið - þeir voru meira með boltann en við sköpuðum fleiri hættuleg færi. Við verðum að fara þangað (á Nývang, heimavöll Barcelona) og spila sama leik."

„Ég var óheppinn (að skjóta tvisvar í stöngina). Ég verð að halda áfram að leggja mig fram. Ég hlakka til næstu leikja."
Athugasemdir