Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. mars 2017 08:00
Alexander Freyr Tamimi
Conte telur að Chelsea verði enn betra
Conte er að gera flotta hluti.
Conte er að gera flotta hluti.
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, býst við að liðið verði enn betra eftir því sem leikmennirnir venjast leikskipulagi hans betur.

Chelsea er enn með 10 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur gegn Stoke á laugardag. Einungis tíu leikir eru eftir og útlitið því mjög gott.

„Þetta tímabil er mjög mikilvægt því leikmennirnir eru að læra að skilja mína hugmyndafræði í fótbolta," sagði Conte eftir sigurinn gegn Stoke.

„Þeir eru að aðlagast mínu leikskipulagi og mínum hugmyndum. Við erum að byggja svolítið mikilvægt. Það tekur smá tíma sem nýr stóri að koma hugmyndum til leikmanna og sýna þeim að þær eru góðar."

Athugasemdir
banner
banner
banner