Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 20. mars 2017 12:00
Magnús Már Einarsson
Hörður Ingi: Hrikalega ánægður með þessa ákvörðun
Hörður Ingi Gunnarsson.
Hörður Ingi Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er hrikalega ánægður með þessa ákvörðun," sagði Hörður Ingi Gunnarsson, vinstri bakvörður FH, en hann gekk í gær til liðs við Víking Ólafsvík á láni.

Hörður lék sinn fyrsta leik með Ólafsvíkingum í 2-1 tapi gegn Val í Lengjubikarnum í gærkvöldi.

„FH er með breiðan hóp og mér fannst ég þurfa að fá mínútur. Ólafsvíkingar voru áhugasamir og vonandi er þetta það sem koma skal, að maður fái að spila 90 mínútur með alvöru lið."

Hörður er 18 ára gamall og ennþá gjaldgengur í 2. flokk. Hann vildi hins vegar komast í meistaraflokks bolta. „Mér fannst ég þurfa að komast í fullorðins bolta. Ég er búinn að spila fjögur ár í öðrum flokki og fannst tími kominn á að taka skrefið fram á við."

Hörður er á ferð og flugi þessa dagana en hann er nýkominn heim úr æfingaferð með FH. Í nótt fer hann með U21 árs landsliðinu til Georgíu og síðan fer hann í æfingaferð með Víkingi Ólafsvík til Spánar.

„Ég er svo heppinn að fá að fara í tvær æfingaferðir. Í nótt förum við til Georgíu og spilum tvo leiki þar og svo förum við til Ítalíu og spilum við Sádi-Arabíu. Það eru spennandi tímar framundan," sagði Hörður.

Hörður var í starfskynningu á Fótbolta.net fyrir þremur árum en þá tók hann meðal annars viðtal við skemmtikraftinn Björn Braga Arnarsson. Mynd af þeim félögum má sjá hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner