Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. mars 2017 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Segir Modeste vera betri en Lewandowski
Modeste er að fara á kostum.
Modeste er að fara á kostum.
Mynd: Getty Images
Timo Horn, markvörður þýska úrvalsdeildarfélagsins Köln, segir að liðsfélagi sinn Anthony Modeste sé betri framherji en Robert Lewandowski.

Hinn 28 ára gamli Modeste, sem eyðir frítíma sínum sem plötusnúður, er að eiga lygilegt tímabil og hefur skorað 22 mörk í Bundesligunni til þessa. Að mati Horn er Frakkinn að sanna að hann er betri en Lewandowski og aðrir framherjar.

„Það sem Anthony er að gera núna er mun betra heldur en aðrir eru að gera," sagði Horn við blaðamenn eftir þrennu Modeste gegn Herthu Berlin um helgina.

„Lewandowski fær sex til sjö færi á silfurfati í hverjum leik. En Tony þarf að láta hlutina gerast. Þess vegna er hann betri að mínu mati."
Athugasemdir
banner
banner