Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. mars 2017 17:15
Magnús Már Einarsson
Sjáðu markið: Kjartan Henry með hörkuskalla
Mynd: Getty Images
Kjartan Henry Finnbogason skoraði með hörkuskalla þegar Horsens gerði 1-1 jafntefli við Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í gær.

Horsens endaði í 10. sæti í dönsku úrvalsdeildinni og fer því í umspil með liðunum í 6-14. sæti en það hefst eftir landsleikjahléið sem er framundan.

Kjartan Henry var í síðustu viku valinn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Kosóvó á föstudag.

Kjartan skoraði í æfingaleik gegn Kína fyrr á árinu en hann hefur ekki verið í landsliðshóp í mótsleik síðan árið 2011.

Hér að neðan má sjá mark Kjartans um helgina en það kemur eftir um það bil 1.30 mínútu.

Athugasemdir
banner
banner
banner