Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. mars 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Le Tissier: Mourinho er að eyðileggja Shaw
Luke Shaw (til vinstri) á erfitt uppdráttar þessa dagana.
Luke Shaw (til vinstri) á erfitt uppdráttar þessa dagana.
Mynd: Getty Images
Matt Le Tissier, sérfræðingur Sky Sports, segir að Jose Mourinho sé að eyðileggja Luke Shaw með meðhöndlun sinni á leikmanninum.

Shaw var tekinn af velli í hálfleik gegn Brighton um helgina og eftir leik gagnrýndi Mourinho hann í viðtölum. Shaw er sagður íhuga að fara frá Manchester United í sumar.

„Ég held að það sé óumflýjanlegt að Shaw fari í sumar ef Mourinho verður þarna ennþá. Ég hef ekki hugmynd um hvað hann er að reyna að gera," sagði Le Tissier.

„Það er mjög sérstakt samband í gangi þaran og ég skil ekki hvað hann (Mourinho) er að gera því hann er að eyðileggja leikmanninn í augnablikinu."

„Ég veit ekki hvort þetta hafi eitthvað með það að gera að Shaw valdi Manchester United fram yfir Chelsea þegar Mourinho var stjóri þar á sínum tíma þrátt fyrir að Shaw hafi verið stuðningsmaður Chelsea."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner