Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 20. mars 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Pogba: Það væri ánægjulegt að spila með Neymar
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, vonast til að spila með hinum brasilíska Neymar í framtíðinni.

„Ég kann vel við Neymar. Hann er merki um ánægju inni á vellinum," sagði Pogba.

„Í Brasilíu er fótbolti allt. Það er lífið í Brasilíu. Allir spila fótbolta. Ég elska að sjá hann spila á vellinum og sjá tækni hans og hæfileika. Þetta er öðruvísi stíll."

„Þegar þú segir orðið 'Neymar' í heiminum þá vita allir hver hann er og hvað hann gerir."

„Þess vegna væri ánægjulegt ef ég gæti spilað með honum einn daginn."

Athugasemdir
banner
banner