Manchester United stendur til boða að kaupa franska miðvörðinn Adil Rami frá Valencia samkvæmt Daily Mail.
Rami leikur sem lánsmaður hjá AC Milan, en ítalska félagið getur ekki keypt Rami þar sem 10 milljón punda verðmiðinn er of hár. Valencia hefur því ákveðið að bjóða United að kaupa hann.
United sárvantar nýjan varnarmann í sumar þar sem fyrirliðinn Nemanja Vidic er á förum til Inter Milan, auk þess sem Rio Ferdinand verður samningslaus.
Rami á að baki 26 landsleiki með Frökkum, en han hefur verið samningsbundinn Valencia frá árinu 2011.
Athugasemdir