Þrír leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en Liverpool getur náð fimm stiga forystu á toppnum með sigri í dag.
Norwich City fær Liverpool í heimsókn á Carrow Road klukkan 11:00 í dag en bæði lið eru að berjast á sitthvorum endanum.
Liverpool berst fyrir deildatitlinum á meðan Norwich er í bullandi botnbaráttu. Liverpool getur tekið fimm stiga forystu með sigri í dag en Chelsea tapaði fyrir Sunderland í gær á Stamford Bridge.
Hull City og Arsenal mætast strax á eftir leik Norwich og Liverpool en þar er hægt að fá smá upphitun fyrir úrslitaleik FA-bikarsins þar sem þessi lið mætast þar.
Everton fær þá verðugan andstæðing á Goodison Park en Manchester United heimsækir þá bláklædda liðið í baráttunni um Evrópusæti.
Leikir dagsins:
11:00 Norwich City - Liverpool
13:05 Hull City - Arsenal
15:10 Everton - Manchester United
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir