Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 20. apríl 2014 13:45
Daníel Freyr Jónsson
Myndband: Ramsey skoraði eftir laglega sókn
Aaron Ramsey hefur skorað mikið í vetur.
Aaron Ramsey hefur skorað mikið í vetur.
Mynd: Getty Images
Welski miðjumaðurinn Aaron Ramsey hefur komið Arsenal yfir gegn Hull í leik sem nú stendur yfir.

Markið kom eftir laglegt samspil, en Mesut Özil fann þá Santi Cazorla á við vítateiginn. Spánverjinn átti síðan fullkomna stungusendingu inn í hlaupaveg Ramsey sem afgreiddi boltann auðveldlega í netið.

Bæði Ramsey og Özil eru að spila sína fyrstu leiki í langan tíma og ljóst að endurkoma þeirra styrkir Arsenal mikið.


Athugasemdir
banner
banner
banner