Franki miðjumaðurinn Paul Pogba, leikmaður Juventus, segist einbeittur á að standa sig vel með liðinu þrátt fyrir áhuga annarra liða.
PSG, Real Madrid og Manchester United hafa verið orðuð við Pogba undanfarið, en þess 21 árs gamli leikmaður þykir einn efnilegasti leikmaður heims.
Pogba kveðst ánægður með áhugann á sér en að hann einbeiti sér þó að því að gleðja stuðningsmenn Juventus.

,,Það gerir mig ánægðan þegar stuðningsmennirnir syngja 'ekki selja Pogba'," sagði franski landsliðsmaðurinn.
,,Það ýtir svo við mér þegar ég geng út á völlinn. Þetta gefur mér meiri metnað til að bæta sjálfan mig. Ég er mjög ánægður með að gera stuðningsmennina ánægða."
,,Eins og er það það eina sem ég vil gera. En að sjálfsögðu gerir það mig ánægðan að önnur félög vilji fá mig. Ég hef ekki rætt við neinn, hvorki um framtíð mína né samninginn."
Athugasemdir