Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 20. apríl 2014 11:00
Daníel Freyr Jónsson
Schwarzer elsti leikmaður í sögu Chelsea
Mark Schwarzer er 41 árs gamall.
Mark Schwarzer er 41 árs gamall.
Mynd: Getty Images
Reynsluboltinn Mark Schwarzer stóð vaktina í marki Chelsea í 2-1 tapi liðsins gegn Sunderland á heimavelli í gær.

Þessi 41 árs gamli Ástrali var í markinu í fjarrveru Petr Cech sem var veikur, en þetta var fyrsti leikur hans í deildinni með Chelsea.

Með því að taka þátt í leiknum í gær setti Schwarzer nýtt félagsmet, en hann varð um leið elsti leikmaður sem leikið hefur deildarleik með Chelsea - 41 árs og 195 daga. Fyrra met var í eigu Graham Rix sem var 37 ára og 203 daga gamall.

Schwarzer á að baki 505 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Lengst af lék hann með Middlesbrough áður en hann gekk í raðir Fulham og síðar meir Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner