Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 20. apríl 2014 15:33
Daníel Freyr Jónsson
Wenger: Allir spiluðu vel í dag
Wenger á hliðarlínunni í dag.
Wenger á hliðarlínunni í dag.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger hrósaði leikmönnum Arsenal eftir 3-0 sigur liðsins á Hull í dag.

Franski stjórinn segir að allt liðið hafi leikið vel í dag, en þeir Mesut Özil og Aaron Ramsey snéru aftur eftir meiðsli. Wenger segir að um það hafi munað.

,,Ramsey er að komast aftur í sitt besta form, en allir spiluðu vel í dag. Þetta var góð liðsframmistaða, líkt og til þarf þegar maður vinnur 3-0 á útivelli í leik sem þarf að vinna," sagði Wenger.

,,Við höfum þurft að vera án fimm til sex leikmanna á sama tíma, en við höfum gert eins vel og við höfum getað gert. Svona er raunveruleikinn."

Arsenal mætir Hull á nýjan leik á Wembley í næsta mánuði í úrslitaleik FA-bikarsins.

,,Bikarúrslitin verða allt annar leikur. Við erum einbeittir á deildina og ætlum að enda eins og ofarlega og við getum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner