Risarnir tveir á Spáni vilja báðir fá Marco Reus frá Borussia Dortmund. Spænskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að forráðamenn Barcelona og Real Madrid hafi haft samband við Volker Struth, umboðsmann leikmannsins.
Sagt er að Reus sé sannfærður um að nú sé rétti tíminn til að yfirgefa þýska félagið eftir að fréttir bárust um að Jurgen Klopp þjálfari sé a förum.
Sport segir Real Madrid á undan í kapphlaupinu í ljósi þess að Katalónarnir eru í kaupbanni þar til 2016.
Bayern München, PSG, Arsenal, Manchester City, Chelsea og Manchester United eru einnig sögð hafa áhuga á þýska landsliðsmanninum.
Athugasemdir