Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. apríl 2015 22:39
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Football Italia 
Forseti Barcelona staðfestir áhuga á Pogba
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Josep Bartomeu forseti Barcelona hefur staðfest áhuga félagsins á Paul Pogba miðjumanni Juventus en veit að erfitt væri að fá leikmanninn sem er samningsbundinn.

Frakkinn er talinn einn af efnilegustu fótboltamönnum heims en hann hefur verið orðaður frá ítalska félaginu.

Barcelona má ekki kaupa leikmenn fyrr en í janúar 2016 en þrátt fyrir það hefur félagið verið orðað við leikmanninn.

,,Pogba er góður leikmaður," sagði Bartomeu.

,,Hann er samningsbundinn ítalska félaginu, og við virðum það. Við erum með plan að sækja góða leikmenn en ég get ekki gefið frekari upplýsingar. Sem stendur nýt ég þess að horfa á Pogba í sjónvarpinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner