Miðvörðurinn Thiago Silva verður ekki með PSG í Meistaradeildarleiknum gegn Barcelona á morgun. Hann fór meiddur af velli í fyrri leiknum sem Börsungar unnu 3-1.
Silva er fyrirliði franska stórliðsins.
PSG verður einnig án Serge Aurier sem verður í banni og þá er Thiago Motta meiddur.
Góðu fréttirnar fyrir PSG eru þær að Zlatan Ibrahimovic og Marco Verratti geta spilað eftir að hafa tekið út bann í fyrri leiknum.
Athugasemdir