Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. apríl 2015 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Markvörður með stórfurðulegt sjálfsmark
Mynd: Getty Images
Það fer oft í gegnum hausinn á áhugamönnum um knattspyrnu að þeir hafi líklega séð allt sem hægt er að sjá í knattspyrnunni en sífellt kemur íþróttin á óvart.

Al Faisaly og Al Wihdat mættust í Jordaníu í nágrannaslag en gestirnir í Al Wihdat unnu sannfærandi, 3-0 sigur.

Mohammad Shatnawi, markvörður Al Faisaly, skoraði sturlað sjálfsmark og kom gestunum í tveggja marka forystu.

Hann varði fyrst frá sóknarmanni gestanna áður en hann sparkaði knettinum yfir sig og í markið. Sjón er sögu ríkari.


Athugasemdir
banner
banner
banner