Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 20. apríl 2017 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Carrick um Ronaldo: Þetta er að verða fáránlegt
Magnaður leikmaður!
Magnaður leikmaður!
Mynd: Getty Images
„Þetta er að verða fáránlegt," segir Michael Carrick, miðjumaður Manchester United, um þau 100 mörk sem fyrrum liðsfélagi hans, Cristiano Ronaldo, hefur skorað í Meistaradeildinni.

Ronaldo varð sá fyrsti í sögu Meistaradeildarinnar til að ná 100 mörkum þegar hann skoraði þrennu gegn Bayern á þriðjudag.

„Að skora svo mörg mörk í svona erfiðri keppni er í raun ótrúlegt," sagði Carrick við heimasíðu Man Utd.

„Ég horfði á báða leikina gegn Bayern. Hann sér færið og það er mark. Hann klúðraði ekki mörgum færum. Hann átti nokkur skot, en þú býst alltaf við því að hann skori."

„Þetta eru ógurlegar tölur, en hversu mörg met hefur hann slegið í gegnum árin? Það er ótrúlegt og segir þér allt um hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner