Leikmenn Bayern München voru brjálaðir eftir leikinn gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld. Bayern féll úr leik í keppninni, en margir kenna dómaranum, Victor Kassai, um það.
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu, en saga leiksins var frammistaða dómarans, Victor Kassai - hann stal senunni.
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu, en saga leiksins var frammistaða dómarans, Victor Kassai - hann stal senunni.
Frank Ribery, kantmaður Bayern, greindi frá gremju sinni á Instagram eftir leikinn. Hann birti þar nokkrar myndir.
Tvö af mörkunum sem Ronaldo skoraði virtust vera ólögleg að sökum rangstæðu og Ribery birti myndir af því.
„Eitt ár af erfiðisvinnu, takk dómari, bravó!" skrifaði Ribery á Instagram, en myndirnar sem hann birti má sjá hér að neðan.
Athugasemdir