Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. apríl 2017 07:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Styttist í endurkomu Courtois - Æfði í gær
Thibaut Courtois.
Thibaut Courtois.
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Chelsea, mætti á æfingu í gær samkvæmt heimildum Sky Sports.

Courtois missti af 2-0 tapi Chelsea síðustu helgi gegn Manchester United vegna ökklameiðsla.

Heimildir Sky Sports herma að Courtois hafi æft með markvarðaþjálfara sínum í gær og vonir eru um að þessi 24 ára gamli markvörður muni æfa í dag með liðsfélögum sínum.

Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir Antonio Conte og hans menn sem eru að undirbúa sig fyrir undanúrslitin Í FA-bikarnum gegn Tottenham, sem er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Samkvæmt ensku pressunni meiddist Courtois á furðulegan hátt, við tökur á körfuboltaauglýsingu. Chelsea hefur ekki viljað staðfesta það.
Athugasemdir
banner
banner