HK-ingar komnir í 32-liða úrslitin.
Ásgeir Marteinsson skoraði þrennu þegar að HK-ingar tryggðu sér farseðilinn í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins eftir 5-0 sigur á Álftanesi í Kórnum. „Þetta var þolinmæðisverk eins og við vissum, þeir lágu aftarlega ."
Lestu um leikinn: HK 5 - 0 Álftanes
Ásgeir skoraði þrjú mörk og þegar hann var spurður að því hvort þetta væri það sem koma skyldi í sumar sagði „Ég vona það ég get ekki verið að lofa neinu ég ætla að eiga gott mót í sumar ."
Þegar hann var spurður út í óskamótherja í 32-liða úrslitunum „Ekki þannig, ég væri til í að fá leik inn í Kór, það er alltaf gott að spila þar ."
Ásgeir vildi ekki gefa upp markmið HK-liðsins í Inkasso deildinni „Við erum með markmið innan hópsins, við erum með skýr markmið þar og það kemur í ljós hvernig gengur ."
Athugasemdir