Markvörðurinn öflugi Manuel Neuer tók þátt á sinni fyrstu liðsæfingu með Bayern München í sjö mánuði í dag.
Hinn 32 ára gamli Neuer hefur þrisvar fótbrotnað síðan í mars 2017 en það gerðist síðast hjá honum í september síðastliðnum. Hann hefur aðeins spilað þrjá leiki á þessu tímabili.
Hinn 32 ára gamli Neuer hefur þrisvar fótbrotnað síðan í mars 2017 en það gerðist síðast hjá honum í september síðastliðnum. Hann hefur aðeins spilað þrjá leiki á þessu tímabili.
Menn binda vonir við það að Neuer geti náð HM sem verður í sumar en þar hefur Þýskaland titil að verja.
„Stóru markmiðin hjá Manuel er að ná að spila eitthvað áður en tímabilinu lýkur og fara á HM með Þýskalandi," sagði Jupp Heynckes, stjóri Bayern, á fréttamannafundi í dag.
Neuer er fyrirliði Bayern og þýska landsliðsins.
.@Manuel_Neuer makes his return to team training! 🙌
— FC Bayern US (@FCBayernUS) April 20, 2018
📰 https://t.co/1bRzvVVSZx pic.twitter.com/rxvHZke4Mv
Athugasemdir