FH-ingar eru ekki hættir að styrka lið sitt fyrir Pepsi-deildina sem hefst eftir aðeins rétt tæpa viku.
Samkvæmt heimildum Vísis er Hafnarfjarðarfélagið að ganga frá samningum við færeyska landsliðsmanninn Brand Olsen.
Brandur kemur til FH frá Randers í Danmörku en þar var hann þjálfaður af Ólafi Kristjánssyni sem er nú þjálfari FH. Ólafur var hjá Randers í aðeins meira en eitt ár en hann lét af störfum þar í fyrra.

Brandur er 22 ára miðjumaður frá Skálavík í Færeyjum. Hann var hjá FCK í Kaupmannahöfn áður en hann fór til Randers en hann hefur lítið sem ekkert spilað fyrir aðallið Randers.
Fyrir færeyska landsliðið hefur Brandur leikið 16 leiki, sá fyrsti kom árið 2014, og skorað þrjú mörk.
Fyrsti leikur FH í Pepsi-deildinni er útileikur gegn Grindavík þann 28. apríl næstkomandi.
Komnir:
Edigerson Gomes Almeida frá Henan Jianye á láni
Egill Darri Makan frá Breiðabliki
Geoffrey Castillion frá Víkingi R.
Guðmundur Kristjánsson frá Start
Hjörtur Logi Valgarðsson frá Örebro
Kristinn Steindórsson frá GIF Sundsvall
Rennico Clarke frá Portland Timbers
Viðar Ari Jónsson frá Brann á láni
Zeiko Lewis frá New York Red Bulls
Farnir:
Böðvar Böðvarsson til Jagiellonia Białystok (Pólland)
Bergsveinn Ólafsson í Fjölni
Emil Pálsson til Sandefjord
Guðmundur Karl Guðmundsson í Fjölni
Jón Ragnar Jónsson hættur
Kassim Doumbia til Maribor
Matija Dvornekovic
Athugasemdir