Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 08:00
Magnús Valur Böðvarsson
3. deild: Grundfirðingar sigruðu Huginn
Ingólfur Örn Kristjánsson spilar nú í sókn Grundfirðinga og tryggði liðinu mikilvæg þrjú stig með tveimur mörkum
Ingólfur Örn Kristjánsson spilar nú í sókn Grundfirðinga og tryggði liðinu mikilvæg þrjú stig með tveimur mörkum
Mynd: Grundarfjörður
Grundarfjörður 3 - 2 Huginn
0-1 Marko Nikolic (27')
1-1 Dalibor Lazic (44')
1-2 Friðjón Gunnlaugsson (53')
2-2 Ingólfur Örn Kristjánsson(74')
3-2 Ingólfur Örn Kristjánsson (80)

Einn leikur fór fram í 3.deild karla í gærkvöldi en leikurinn átti að fara fram á Laugardeginum en hafði verið frestað vegna veðurs.

Grundfirðingum var ekki spáð góðu gengi af sérfræðingum Fótbolta.net en náðu að bæta við sig nokkrum erlendum leikmönnum á seinustu dögum félagaskiptanna á meðan Huginsmönnum hafði verið spáð góðu gengi.

Það voru gestirnir frá Seyðisfirði sem byrjuðu leikinn betur og náðu forystu með marki frá kanntmanninum Marko Nikolic. Heimamenn voru þó ekki á þeim buxunum að gefast upp og náði reynsluboltinn Dalibor Lazic að jafna leikinn rétt fyrir hlé.

Gestirnir náðu svo aftur forystu þegar Friðjón Gunnlaugsson kom þeim yfir. Heimamenn í Grundarfirði áttu svo góða endurkomu þegar markvörðurinn fyrrum og nú sóknarmaður Ingólfur Örn Kristjánsson jafnaði og tryggði þeim svo sigurinn með tveimur góðum mörkum

Grundfirðingar byrja því mótið vel og nældu sér í þrjú mikilvæg stig í nýju þriðju deildinni á meðan gestirnir í Hugin þurfa að bíta í það súra epli að fara stigalausir heim.
Slapp
banner