Þrír leikir fara fram í Pepsi-deild karla í dag, en þá eru einnig nokkrir aðrir góðir leikir á dagskrá.
ÍBV og KR mætast á Hásteinsvelli klukkan 17:00, en bæði liðin hafa byrjað tímabilið afar vel. KR er með fullt hús stiga á meðan ÍBV er með sjö stig eftir þrjár umferðir.
Þórsarar fá þá Víking í heimsókn á Akureyri á sama tíma. Þessi lið komu upp úr fyrstu deildinni í fyrra, en eru bæði án stiga og ljóst að annað liðið kemur til með að fá sín fyrstu stig í dag.
Keflavík fær þá Fylki í heimsókn á Nettóvöllinn klukkan 19:15. Keflavík er komið með þrjú stig eftir þrjár umferðir, en Fylkir er með eitt stig.
Fleiri aðrir góðir leikir verða í kvöld. Leikið er í þriðju og fjórðu deild karla auk þess sem einn leikur er á dagskrá í fyrstu deild kvenna.
Leikir dagsins:
Pepsi-deild karla:
17:00 ÍBV - KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór - Víkingur Ó. (Þórsvöllur)
19:15 Keflavík - Fylkir (Nettó-völlur)
3. deild karla:
14:00 Kári - Leiknir F. (Akranesvöllur)
4. deild karla:
14:00 Skínandi - Kormákur/Hvöt (Samsung-völlurinn)
16:00 Berserkir - Snæfell/Geislinn (Víkingsvöllur)
20:00 KH - KB (Hlíðarendi)
1. deild kvenna:
13:00 Fram - BÍ/Bolungarvík (Framvöllur - Úlfarsárdal)




