Heimild: London Evening Standard
London Evening Standard heldur því fram að Gareth Bale sé búinn að samþykkja að gera nýjan samning við Tottenham.
Bale skoraði 31 mark á nýliðnu tímabili en miklar vangaveltur hafa verið í kringum framtíð hans.
Bale skoraði 31 mark á nýliðnu tímabili en miklar vangaveltur hafa verið í kringum framtíð hans.
Þær vangaveltur minnkuðu ekki eftir að Tottenham missti af Meistaradeildarsæti en London Evening Standard segir að Bale ætli að vera áfram hjá Spurs þrátt fyrir það.
Bale ku hafa náð samkomulagi um nýjan samning sem færir honum 130 þúsund pund í vikulaun en Tottenham mun greina frá þessu í fréttatilkynningu á næstunni.
Bale hefur meðal annars verið orðaður við Real Madrid og Manchester United undanfarna mánuði.



