Klukkan 19:15 hefst síðasti leikur dagsins í Pepsi-deildinni þegar Keflavík tekur á móti Fylki. Keflavík fékk sín fyrstu stig með sigri gegn Víkingi Ólafsvík í síðustu umferð. Fylkir er með eitt stig eftir jafntefli gegn Fram í 2. umferð.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Ein breyting er á byrjunarliði Keflavíkur. Magnús Þórir Matthíasson kemur inn en hann kom verulega sterkur af bekknum í síðasta leik. Magnús lék með Fylki í fyrra.
Hjá Fylki eru tvær breytingar frá síðasta leik. Árni Freyr Guðnason og Oddur Ingi Guðmundsson koma inn í byrjunarliðið.
Byrjunarlið Keflavíkur:
David Preece (m)
Haraldur Freyr Guðmundsson (f)
Halldór Kristinn Halldórsson
Andri Fannar Stefánsson
Arnór Ingvi Traustason
Jóhann Birnir Guðmundsson
Magnús Þórir Matthíasson
Marjan Jugovic
Sigurbergur Elísson
Frans Elvarsson
Fuad Gazibegoivc
Byrjunarlið Fylkis:
Bjarni Þórður Halldórsson (m/f)
Finnur Ólafsson
Davíð Þór Ásbjörnsson
Árni Freyr Guðnason
Tryggvi Guðmundsson
Pablo Punyed
Tómas Joð Þorsteinsson
Sverrir Garðarsson
Viðar Örn Kjartansson
Elís Rafn Björnsson
Oddur Ingi Guðmundsson

