Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 17:29
Magnús Már Einarsson
Danmörk: Bröndby bjargaði sér frá falli
Bröndby féll ekki.
Bröndby féll ekki.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Danska stórveldið Bröndby bjargaði sér naumlega frá falli þegar lokaumferðin í úrvalsdeildinni fór fram í dag.

Bröndby lagði Horsens 1-0 á útivelli sem varð til þess að síðarnefnda liðið féll. Lebogang Phiri skoraði sigurmarkið í viðbótartíma en þá voru leikmenn Bröndby manni færri.

Bröndby hefði nægt jafntefli í leiknum en liðið endaði með sigrinum fimm stigum á undan Horsens í níunda sæti deildarinnar.

Dönsku meistararnir í FC Kaupmannahöfn gerðu 1-1 jafntefli við SønderjyskE í lokaumferðinni. Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með Kaupmannhöfn en Rúrik Gíslason og Sölvi Geir Ottesen komu ekki við sögu.

Hallgrímur Jónasson lék allan leikinn með SønderjyskE sem endaði í áttunda sæti deildarinnar.

Arnór Smárason lék allan leikinn með Esbjerg sem tapaði 1-0 gegn Nordsjælland. Esbjerg endaði í fjórða sæti deildarinnar.

Theodór Elmar Bjarnason sat á bekknum hjá Randers sem gerði 2-2 jafntefli við AAB en liðið endaði í þriðja sæti deildarinnar.

Bjarni Þór Viðarsson sat allan tímann á bekknum hjá OB sem gerði 3-3 jafntefli við Silkeborg. OB endaði í tíunda sæti deildarinnar, stigi á eftir Bröndby.

Lokastaðan:
1. FC Kaupmannahöfn 65 stig
2. FC Nordsjælland 60 stig
3. Randers 52 stig
4. Esbjerg 47 stig
5. AaB 47 stig
6. FC Midtjylland 47 stig
7. AGF 41 stig
8. SönderjyskE 41 stig
9. Bröndby 39 stig
10. OB 38 stig
11. AC Horsens 34 stig
12. Silkeborg 31 stig
Slapp
banner