Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 06:00
Brynjar Ingi Erluson
David Luiz: Ég lærði mikið af Benitez
David Luiz, leikmaður Chelsea á Englandi, vildi þakka spænska stjóranum, Rafael Benitez, kærlega fyrir hans framlag til félagsins eftir leik liðsins gegn Everton í gær.

Chelsea vann Everton með tveimur mörkum gegn einu og tryggði sér þar með þriðja sæti deildarinnar, en liðið vann þá Evrópudeildina í síðustu viku eftir magnaðan úrslitaleik gegn Benfica.

Rafael Benitez tók við félaginu af Roberto Di Matteo fyrir áramót og tókst að gera góða hluti, en Luiz þakkaði honum kærlega fyrir.

,,Við viljum þakka Rafael Benitez kærlega því hann hefur verið magnaður fyrir liðið og mig persónulega. Ég lærði mikið af honum og hann er mikill atvinnumaður. Fólk sagði slæma hluti um hann, en ekki margir þjálfarar geta gert það sem hann getur," sagði Luiz.

,,Hann fer héðan með titil og skilaði okkur í Meistaradeildina á næsta tímabili. Við munum fá nýjan þjálfara, en andinn þarf að vera sá sami. Við þurfum að vinna leiki og titla og við munum bíða eftir næsta þjálfara til þess að reyna að gera það," sagði hann að lokum.
Slapp
banner