Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 13:30
Magnús Már Einarsson
Dómararnir fengu mynd og áritun hjá Ferguson
Sir Alex Ferguson stýrði Manchester United í síðasta skipti í gær þegar liðið gerði 5-5 jafntefli við WBA.

Eftir leikinn fengu dómarar leiksins mynd af sér með Ferguson og eiginhandaráritanir frá honum.

Um var að ræða Michael Oliver dómara leiksins, Ceri Richards og Dave Bryan aðstoðarmenn hans sem og Chris Foy fjórða dómara.

Ferguson hefur oft látið dómarana heyra það í gegnum tíðina en hann varð að sjálfsögðu við beiðni þeirra í gær.

Þess má til gamans geta að Oliver dómari var eins árs gamall þegar Sir Alex tók við Manchester United árið 1986.

Smelltu hér til að sjá mynd af Ferguson með dómurunum
Slapp
banner