Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 16:27
Magnús Már Einarsson
Falcao fer frá Atletico Madrid í sumar
Atletico Madrid hefur staðfest að Radamel Falcao geti yfirgefið herbúðir félagsins í sumar.

Falcao hefur verið sterklega orðaður við Monaco að undanförnu en hann hefur einnig verið orðaður við félög á Englandi.

Þessi 27 ára gamli markaskorari hefur skorað 34 mörk á tímabilinu og Atletico ætlar ekki að standa í vegi fyrir honum ef hann vill fara.

,,Fyrir tímabilið töluðum við saman og lofuðum því að ef hann myndi halda áfram að standa sig vel og hjálpa okkur að komast í Meistaradeildina þá myndi Atletico hjálpa honum," sagði Miguel Angel Gil Marin framkvæmdastjóri Atletico sem óttast ekki að erfitt verði að fylla skarð Falcao.

,,Atletico veit hvernig á að búa til góðan framherja. Fernando Torres, [Diego] Forlan, [Sergio] Aguero og núna Falcao. Ég veit ekki nákvæmlega hver er næstur en það er ljóst að Atletico verður með gott lið á næsta tímabili."
Slapp
banner
banner
banner