Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Frægustu ummæli Jose Mourinho
Mynd: Google
Nú er búið að staðfesta það að Jose Mourinho verður ekki við stjórnvölinn hjá Real Madrid á næsta tímabili eftir misheppnað tímabil þar sem liðið endaði í öðru sæti í deild og bikar og datt úr Meistaradeild Evrópu í undanúrslitum.

Talið er líklegt að Mourinho taki við stjórnartaumum Chelsea en hann er einn sá eftirsóttasti, og litríkasti, í bransanum. Hér fyrir neðan má sjá einhver frægustu ummæli Portúgalans.

,,Ekki kalla mig hrokafullan, en ég er Evrópumeistari og ég tel sjálfan mig vera sérstakan."

Þetta var innkoma Mourinho í enska fjölmiðla og er ein frægasta lína hans, enda er hann oft kallaður hinn sérstaki.

,,Ef gerð yrði mynd um líf mitt þá ætti George Clooney að leika mig. Hann er stórkostlegur leikari og konan mín telur að hann sé fullkominn í verkið.

,,Eina pressan sem ég finn er vegna svínaflensunnar. Ég finn fyrir mikilli pressu vegna vandamálsins í Skotlandi. Þetta er ekki skemmtilegt og ég er hræddari við svínaflensuna heldur en fótbolta."


Sagði Mourinho eftir að hann var spurður að því hvort hann fyndi fyrir aukinni pressu vegna erfiðleika í toppbaráttunni.

,,Sjáið til, ég er þjálfari. Ég er ekki Harry Potter. Hann getur galdrað, en í raunveruleikanum er ekki hægt að galdra. Galdrar eru skáldskapur og fótbolti er raunverulegur."

Mourinho varaði stuðningsmenn Real Madrid við því að þeir gætu ekki búist við því að sprota yrði veifað og titlar kæmu sjálfkrafa til félagsins.

,,Þú værir líka sorgmæddur ef liðið þitt væri yfirspilað af liði sem kostaði 10 prósent af þínu liði."

Mourinho ákvað að strá salti í sárin eftir að Porto sló Manchester United úr Meistaradeild Evrópu árið 2004.

,,Ég held að hann sé einn af þessum gluggagæjum. Honum líkar það að horfa á annað fólk. Það eru sumir karlmenn sem eiga stóran sjónauka heima hjá sér til að horfa á hvað er að gerast í öðrum fjölskyldum."

Ummæli Mourinho sem beindust að Arsene Wenger. Wenger hafði gagnrýnt Chelsea-liðið og Mourinho tók ekki vel í það. Mourinho baðst afsökunar á ummælunum.

,,Stundum sérðu fallegt fólk án heila. Stundum er líka ljótt fólk sem er gáfað, eins og vísindamenn."

Myndhverfing Mourinho fyrir leik Chelsea gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu 2006.

,,Ég myndi elska að eiga Aston Martin bíl, en ef þú vilt fá eina milljón punda fyrir Aston Martin þá segi ég að þú sért brjálaður vegna þess að bíllinn kostar 250 þúsund pund."

Mourinho kom því svona út úr sér að hann myndi ekki yfirbjóða í leikmenn á leikmannamarkaðinum þrátt fyrir mikinn pening til leikmannakaupa.

,,Ég er Jose Mourinho og ég breytist ekki. Ég kem með alla mína kosti og galla."

Orðin sem Mourinho sagði við komu sína til Real Madrid og hefur svo sannarlega staðið við.
Slapp
banner