Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard: Fékk Carragher lánaða skó hjá mér?
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool á Englandi, spilaði ekki gegn QPR í síðasta leik deildarinnar í gær vegna meiðsla, en segir þó að Jamie Carragher hafi sennilega fengið lánaða skó frá honum fyrir leikinn.

Carragher átti bylmingsskot í leiknum og var nálægt því að skora sitt fjórða mark í ensku úrvalsdeildinni, en boltinn fór í stöngina.

Hann skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið á sínum tíma og það hefði kórónað ferilinn hefði hann skoraði í síðasta leik sínum, en heppnin var ekki með honum.

,,Ég held að Carragher hafi fengið lánaða skó hjá mér þar sem ég var ekki að spila, annaðhvort mína eða hjá öðrum í liðinu," sagði Gerrard.

,,Við höfum ekki séð þetta í 20 ár. Þetta hefði verið týpískur endir, hann skoraði í sínum fyrsta leik, en þvílíkt skot engu að síður," sagði hann ennfremur.
Slapp
banner
banner
banner