Guðmundur Steinn Hafsteinsson, fyrirliði Víkings Ólafsvíkur, var að vonum svekktur eftir að hafa tapað miklum baráttuleik gegn Þór á Akureyri fyrr í dag.
,,Þetta er ekki gott mál að vera án stiga eftir fjóra leiki. Slæmt að taka leik eins og í dag, leik þar sem við verðum að spila upp á úrslit og gerum það ekki. Þeir náðu inn marki í fyrri sem breytti leiknum og unnu leikinn og það er ekki gott."
,,Það sem fór úrskeiðis var að við fengum þetta mark á okkur og svo vorum við ekki nógu grimmir í kringum teiginn. Við eigum klárlega að setja mark í leik eins og þessum þar sem við vorum bersýnilega betri en andstæðingarnir."
,,Við spiluðum bara eins og aðstæðurnar buðu upp á og Þórsarar gerðu það líka. Völlurinn var jafngóður fyrir þá og hann var fyrir okkur. Það er ekki hægt að kenna vellinum um neitt, hann var ágætur miðað við margt annað."
,,Næsta vika fer bara í að vinna í okkar málum fyrir næsta leik. Okkar leikur fer batnandi með hverjum leik sem við spilum og það er bara tímaspursmál hvenær stigin fara að detta inn. Vonandi koma þau fyrstu í næsta leik."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.























