Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 12:30
Elvar Geir Magnússon
Lið vikunnar í enska - Carragher í liðinu
Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram í gær. Það er því komið að síðasta Domino´s liði tímabilsins en það kemur frá ESPN að þessu sinni.

Arsenal hreppti hið eftirsótta fjórða sæti og spilar því í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Arsene Wenger fær þar af leiðandi að vera knattspyrnustjóri í liði vikunnar.



Simon Mignolet - Sunderland
Það þurfti ansi sérstakt mark til að skora framhjá Mignolet sem var í fantastuði gegn Tottenham.

Ron Vlaar - Aston Villa
Hollendingurinn hefur fengið minna hrós en hann á skilið fyrir frammistöðu sína á tímabilinu.

Jamie Carragher - Liverpool
Lék sinn síðasta leik. Liðið hélt hreinu gegn QPR og Carragher vann skallaboltana sem skiptu máli. Var þar að auki nálægt því að skora.

Laurent Koscielny - Arsenal
Það var mikill taugatitringur í gangi gegn Newcastle en Arsenal gerði það sem þurfti að gera.

Alexander Kacaniklic - Fulham
Var allt í öllu í því sem Fulham gerði gegn Swansea.

Juan Mata - Chelsea
Fékk heiðursskiptingu seint í leiknum. Það segir sitt um frammistöðu hans á tímabilinu.

Kevin Nolan - West Ham
Skoraði þrennu í 4-2 sigri gegn Reading.

Jonny Howson - Norwich
Skoraði eftir magnað einstaklingsframtak í frábærum 3-2 sigri á Manchester City.

Antonio Valencia - Man Utd
Átti einn sinn besta leik á tímabilinu. Minnti á frammistöðuna sem hann sýndi tímabilið á undan.

Romelulu Lukaku - West Brom
Þessi leikmaður hefur verið hreint magnaður fyrir West Bromwich Albion á tímabilinu. Vörn Manchester United réði ekki við hraða hans, kraft og klókindi. Það verður erfitt fyrir West Brom að fylla hans skarð þegar hann fer aftur til Chelsea.

Rickie Lambert - Southampton
Grant Holt þessa tímabils. Tryggði Dýrðlingunum stig í gær.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
banner