Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Football-Italia 
Man Utd undirbýr tilboð í Marchisio
Samkvæmt ítölskum fréttamiðlum gæti Claudio Marchisio verið á leið til Manchester United í sumar, en félagið er talið vera að undirbúa 25 milljón punda tilboð í leikmanninn.

Marchisio ólst upp hjá Juventus og hefur verið byrjunarliðsmaður síðan 2006 og hefur verið fastamaður í ítalska landsliðinu frá og með HM 2010.

Marchisio er 27 ára gamall og hefur United haft áhuga á honum í einhvern tíma en Juventus hefur aldrei viljað láta hann fara, þar til nú.

Með komu Paul Pogba til Juve gæti félagið losað sig við miðjumann til að styrkja sóknarleikinn, en Carlos Tevez og Luis Suarez eru leikmenn sem Ítalíumeistararnir hafa mikinn áhuga á.
Slapp
banner