Josh Turnbull stal senunni á Stamford Bridge eftir leik Chelsea og Everton í gær. Josh, sem er sonur Ross Turnbull markvarðar Chelsea, fór með bolta frá miðlínunni og náði á endanum að skora fyrir framan stuðningsmenn Chelsea. Paulo Ferreira var að flytja kveðjuræðu fyrir framan stuðningsmennina þegar atvikið átti sér stað en Portúgalinn stoppaði ræðuna til að leyfa Josh að fá sviðsljósið eins og sjá má hér að neðan.

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf.
All rights reserved.


